Brostu og heimurinn brosir til þín
09.08.2006 19:39:54 / allarun

HÆTT!!!!

  

        

        HÆTT.....!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 00:24:59 / allarun

TIL AFA...

 

Já afi ég veit að það eru liðin 5 ár síðan að þú fórst, en ég vil trúa því að þú sért komin á betri stað. Ég skrifa þetta til þín því ég vil líka trúa því að þú sért að filgjast með okkur og að einhvern vegin getir þú lesið þetta.

 

 

 

 

 

 

Þetta gerðist e-ð svo fljótt að maður gerði sér ekki grein fyrir því hvað var að gerast. Við vorum búin að vera að rúnta um eyrina um morguninn og leika okkur í garðinum. Þú varst að hluta til að reyna að dreyfa huga mínum og hressa mig við, því þú vissir að við stelpurnar hefðum verið að rífast kvöldið áður.

Þegar við vorum búin að vera í gaðinum þá var komin hádegismatur og við fórum upp og  borðuðum hádegismat með ömmu. Eftir matinn fórstu út að ná í brjóstsviðatöflur því þú hélst að þú værir að fá brjóstsviða.  Svo fórum við í tölvuna, þú varst að kenna mér á leik í henni, ég gleymi því aldrei hvað það var gaman. En svo fórstu e-ð fram og svo kallaði amma upp en þú svaraðir ekki , hún kallaði aftur og þá komstu labbandi eftir ganginum og sagðir og þú værir alveg að drepast úr brjóstsviða. Hún sagði þér að leggjast niður í rúmið og þú gerðir það. Þú varst svo þrjóskur og stóðst sko fast á þínu um að það þyrfti sko ekkert að hringja á sjúkrabíl, þú værir sko engin aumingi! Ég gleymi aldrei þessum degi. En svo byrjaði þetta allt. Þetta gerðist svo rosalega hratt og svo bara allt í einu varstu farinn. Ég skildi ekki hvernig þetta gerðist og skildi ekki afhverju. Þú varst alltaf svo hraustur og hress. Það tók mig tíma að átta mig á því hvað hafði í rauninni gerst.

Ég vil segja þér og ég vona að þú hafir áttað þig á því að þegar fjölskyldan fór að sjá þig á Ísafirði daginn eftir og ég fór ekki með, þá var það ekki útaf því að ég vildi ekki sjá þig heldur að ég var bara ekki tilbúin að sjá þig , ég treysti mér ekki til þess.

 

 

Allar þessar minningar góðar og aðrar ekki eins góðar.  Þú varst alltaf hress og var ekki lagt í grínið. Þú varst vina margur og þér verður ALDREI gleymt.

 

 

 

 

 

 

 

Váá ég næ því ekki að í dag séu akkurat 5 ár síðan þú fórst:S þetta hefði alveg eins geta gerts í fyrra...! Ég vona bara að þú vitir að þín er sárt saknað og að við elskum þig öll...

 

Þín alltaf

        Alla Rún

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun